|
30.09.2007 16:50:59 / binni
Ég setti upp nýja síðu á www.pjakkur.net. Hugsaði mér að við gætum notað hana sem blogg tól í staðin fyrir þessa síðu. Þeir sem vilja geta líka fengið póstfang, xxxx ( hjá ) pjakkur.net og svo er líka hægt að nota myndaalbúmið þarna til að deila myndunum með okkur hinum Endilega kíkið á þetta og segið mér hvað ykkur finnst, og ef þið viljið aðgang til að geta bloggað/sett inn myndir, setjið þá bara inn komment eða sendið mér póst (binni ( hjá ) pjakkur.net). Ef ykkur finnst þetta ómögulegt þá megiði líka segja mér það
»
13.07.2007 11:02:23 / laufeyja
Hvernig gengur með listana?
Núna eru bara Binni og Obba búin að skila mér listum....og það
er bara afþví ég áreitti Binna í marga marga daga og hélt byssu upp
að höfði Obbu á kaffibarnum og rétti henni servettu.
Koma svo krakkar! Skilið mér listunum áður en ég sendi á
ykkur handrukkara.
Knúsímúsí rúsínurnar mínar.
Laufey
»
25.06.2007 15:22:07 / laufeyja
Sælir elsku vinir,
jæææææja nú erum við í haust búin að þekkjast í 10
ár! Þykir okkur flestum þá vera tilefni til þess að halda
stærsta party sögunnar. Uppi eru hugmyndir um að fara út að
borða og leigja saman sal og græjur...jafnvel splæsa í
bollu? Þetta verður ekkert svo dýrt þegar við erum svona
mörg!
Næst á dagskrá er að finna dagsetningu og gestafjölda.
DAGSETNING. Við ákváðum í e-u flýti í afmælinu hennar
bjarneyjar að hafa teitið laugardaginn 27.júlí því það er EINA
helgin í sumar sem að allir komast...að við héldum. Svo var
Binni svo góður að benda mér á að Heiðdís og Elli eru að gifta sig
sama dag...og varla vilja Inga og Binni mæta þangað þunn, svo
föstudagurinn kemur heldur ekki til greina. Þá er ekkert í
stöðunni nema að hafa partyið laugardaginn 1.september!! Og
þeir sem ekki taka þann dag frá þurfa að mæta mér í hnífabardaga
(þið fáið ekki hníf). Það er engin afsökun að vera að vinna
eða blabla....þið hafði 2 mánuði til að redda ykkur fríi! (ég
er ekki í alvöru reið...né að fara að mæta fólki í
hnífabardaga).
GESTAFJÖLDI. Nú skuluð þið elsku krakkalingar skrifa niður
ALLA sem ykkur dettur í hug að bjóða og senda mér listann.
Svo tek ég saman hvað það eru alls margir....því væntanlega munum
við mörg skrifa niður sama fólkið. Ef það eru of margir
gestir þá hef ég samband við þá sem eru með flesta gesti og við
skröpum nokkra vini og vandamenn af þeim lista. OK? Ekki vera
feimin við að skrifa niður fólk! More the merrier! Þá
munum við tékka á sölum og verðum og þá kemur betur í ljós
endalegur gestalisti.
KJARNI MÁLSINS:
SEGA MEGA vina stórafmælisteiti 1.september.
Útbúa vinalista með zilljón vinum og
kunningjum.
Over and out.
Laufey
»
19.06.2007 12:02:50 / bjarney
Jæja, Bjarney á afmæli í dag. Í tilefni dagsins fer hún út
að borða með Kela og svo ef einhverjum langa rað hitta hana eftir
það, má hafa samband 
Á föstudag/laugardag verður afmælisveisla og kveðjupartí
(seinasta partíið áður en ég fer í Vatnsfjörð). Á hvaða degi
viljiði koma heim til mín í fyllerí?
Látið heyra í ykkur!
»
10.06.2007 16:39:02 / bjarney
Hey hermano.
Nú er komið að því að kallinn á stórafmæli, orðinn 25
ára og við ætlum að halda uppá það með smá grillveislu á
föstudaginn. Í boði verður grillmatur, smá bjór og hvítt og
rautt. Ef þið ætlið að hrynja í það, er kannski sniðugt að
koma með eitthvað smotterí handa sjálfum sér En ykkur er
öllum boðið, ég býst samt við að út verði send boðskort.
Látið vita ef þið komist ekki, hilsen Bjarney og
Keli.
»
07.06.2007 13:52:58 / inga
Ég var að hugsa um að halda smá grillpartý fyrir áhugasama.
Tilefnið er nú ekki af verri endanum... bjóða hana Ernu velkomna
heim og kveðja mig þar sem ég held á vit ævintýranna (já og
fátæktarinnar reyndar líka...) í Afríku aðfaranótt
sunnudagsins.
Mér fannst þetta einstaklega sniðugt fyrirkomulag hjá Bjarneyju
og Kela um daginn... að allir komi með sitt kjöt og svo verð ég með
eitthvað meðlæti (gras og kartöflur og þvíumlíkt!) - eruði ekki til
í svoleiðis?
Ég held að flestir viti nú af þessu og flestir hafi ætlað að
mæta en endilega látið mig vita ef þið komist ekki.
Mæting kl. 20:00.
Sjáumst!!
- Inga Rós
»
31.05.2007 01:14:40 / laufeyja
Sælir krakkar mínir.
Ég er að útskrifast á laugardaginn og í tilefni að því er party
heima hjá mér milli 20 og 01.
Sjáumst þá!
kv Laufey
»
24.05.2007 19:39:33 / bjarney
Ættum við ekki að reyna að tralla eitthvað um helgina?
Jafnvel á sunnudag, þar sem að það er frí á mánudag? Kannski
að reyna að sjá í skottið á Önnu og Mumma, sem ég hef ekki séð
síðan á Akureyri... Nei... smá ýkjur.
»
14.05.2007 15:54:01 / bjarney
Ég og Keli vorum að pæla hvort að við ættum að halda eitthvað
sprell heima hjá okkur? Kynna þá sem enn hafa ekki séð nýja
stofuborðið fyrir því?
Hver er stemmarinn?
»
04.04.2007 13:07:48 / obba
Þar sem kvöldið í kvöld er víst viðurkennt djammkvöld en ekki annað
kvöld verður matarboð/drykkja hjá mér í kvöld kl 8 og
sund/strætó/bíóferð frestast. Komið endilega með e-ð sniðugt sem
hægt er að setja upp í eigin munn og annarra.
»
04.04.2007 10:20:12 / obba
Langar að halda matarboð og samdrykkju annað kvöld heima hjá
mér, eruð þið geim?
»
29.03.2007 20:28:31 / inga
Jæja nú er Erna væntanleg heim hvað úr hverju (hvaða dag
nákvæmlega kemur skvísan heim annars?) Upp kom sú hugmynd heima
hjá Bjarneyju um síðustu helgi að skella sér í sund í
Vesturbæjarlauginni og fara svo með strætó í bíó (mögulega á
Music and lyrics). Einnig telst nauðsynlegur hluti
ferðarinnar að fá sér bjór í strætó og ekki væri nú verra ef okkur
tækist að henda eins og einum poppkornspoka yfir bíósalinn og setja
slatta af nachos-sósu í hárið á konunni í röðinni fyrir framan

Við vorum búin að stinga upp á næsta fimmtudegi (skírdagur).
Ég var að spá... er einhver möguleiki að það sé hægt að hafa
sund-strætó-bjór-bíó-ferðina á miðvikudaginn í stað fimmtudagsins?
(eru ekki flestir í fríi hvort eð er á fimmtudaginn?) Það er nebbla
matarboð heima (svona soldið fínt) og mér finnst pínu leiðinlegt að
hlaupa út strax eftir matinn.. en ég geri það nú samt ef þið komist
ekki á miðvikudeginum.
»
13.03.2007 14:57:24 / inga
Hæ hæ!
Hvað segiði um smá get together annað kvöld kannski um kl. 21?
Ég var að tala við Obbu og Laufeyju (og Geir sem var afar fámáll..)
á MSN og við vorum jafnvel að hugsa um að hittast hjá Obbu Ég
ætla að koma með brownies! Kannski að einhver reddi mjólk (Geir?!?)

Jeiii!! þetta verður ótrúlega fínt - hlakka til að sjá ykkur öll
sömul!!!
Sjáumst 
»
27.02.2007 15:42:41 / bjarney
Halló aftur!! Ég var að pæla í hvort að við ættum ekki að fara að
byrja þetta aftur? Mér fannst svo voða gott að sjá hvað væri
að gerast hjá okkur hér  Anyways... Eitthvað að gerast um
helgina?
»
17.01.2007 15:24:19 / anna
Ég veit ekki hvort einhver les þetta lengur, en ég ætla að halda
getttúgeðer á föstudaginn. Bjarney kemur beint úr vísindaferð og
við vitum hvað það þýðir. Mætum með bjórinn.
Ykkar,
Anna
»
Síður: 1 2 3 ... 11
|